Aðalvalmynd

Teljari

Myndir

Bloggarar

The last blogg...Jóna Björk Viðarsdóttir

 

Já þið segið það..mér sýnist tetta blogg vera dáið.. aetla ad blogga hér med formlega í síðasta skipti.. get nú ekki bara yfirgefa greyið án þess ad segja neitt þar sem ég er nú búin ad blogga (svona af og til allavega;) í um 4 ár eda síðan í janúar 2005 þegar ég flutti hingað út. Þad eru líka allir haettir ad nenna ad lesa blogg tar sem allir eru húkt á facebook (tar med talin ég;) hehe

 Er að vinna núna og þar sem er voða rólegt  ákvað ég að skrifa lokabloggiðLaughing Er ad vinna núna í  "cumstomer service" á stórum alþjóðlegum sýningum.. það er að segja uppbyggingunni, þegar fyritækin eru ad byggja upp standinn sinn (sem eru engin smásmídi) kemur fólk med öll vandamál og vesen og beiðnir til okkar.. og líka til ad fá passana sína. Um daginn var ég á Mobile World Congress tar sem komu fyrirtaeki from all around the world (einhver túsund og í 8 sýningarhöllum) og núna er ég á industry sýningu sem er reyndar frekar lítil og bara í einum sal. Svo er ég á skrá hjá nokkrum ráðningaskrifstofum sem hringja til að vinna á sýnigum eða fundum og fl. Og svo leysi ég af á einum veitingastað.. ekki auðvelt ad fá vinnu núna eenn maður reynir allavega að survive;) Heimsferðir byrja ekki að fljúga fyr en í lok maí þannig að engin vortörn þetta áriðUndecided

 

Ég er svo bara að bíða eftir sumrinu en ég verð á Íslandinu góða og verð enn og aftur aðvinna á hinni ofursvölu bensínstöð Esso.. eða N1 eins og hún heitir víst;) ekki eins og maður hafi um margt að velja í kreppunni. Hehe

Ég segi bara takk allir sem hafa nennt að fylgjast með mér og nennt ad kommenta.. og HEIDURSGEST síðunnar ætla ég að útnefna hana VILLU frænku!! þú ert bestustWink

 

Hasta la vista beibí Kiss

 

 

I´m alive! heheJóna Björk Viðarsdóttir

 

Já þið segið það.. tími á nýtt blogg... held að þetta blessaða blogg sé alveg að líða undir lok. En já best að koma með allvega nokkrar línur til að sýna að ég á lífi;) Er reyndar komin með ógeð á að sitja fyrir framan tölvuna og skrifa í dag og er að hugsa um að slökkva á tölvunni þegar ég er búin að setja inn smá blogg. Ég er nebblega að þýða texta frá ensku yfir á spænsku fyrir tengdapabba. Gríðarlega skemmtilegur texti eða þannig.. frekar flókin þannig að þetta gengur frekar hægt. Geri smá á hverjum degi og er um hálfnuð. En ég læri nú alveg slatta á þessu.. og fæ náttlega eitthvað borgað fyrir;) 

 Svo tel ég bara dagana þangað til ég kem heim um jólin.. kem snemma þetta árið, kem 12.des og verð í um 3 vikur.. bara lúxus þessi jólin;)  Ég hef held ég aldrei verið svona desperat að komast heim eins og núna.. þó ég hafi flogið þúsund sinnum heim í sumar þá fór ég bara einn dag norður á Akureyrina mína. Get bara ekki beðið og get líka ekki beðið eftir að hitta Elvuna mína.. ekki búin að sjá hana í eitt og hálft ár!! Svakalegt!  

Ég er búin að græja nokkrar jólagjafir.. er að vinna í þessu, ætla að reyna vera ekki í stressi á síðustu stundu eins og alltaf;)  Verð líka að kaupa eitthvað heima til að eyða frekar krónunum mínum.. því ekki nota ég þær hér!

Ég var alla síðustu viku að drepast í endajöxlunum mínum.. komin sýking í einn. Hér er sjúkrasistemið svo sniðugt að endajaxlatökur eru fríar.. þarf reyndar að bíða þangað til í janúar.. en held ég meiki það alveg. Fer á morgun til tannlæknis til að fá svo tíma í tökuna.  

Bíllinn er algjör draumur.. ég má reyndar eiginlega ekki keyra hann því ég er ekki inní í tryggingunni.. var miklu ódýrara að tryggja fyrir eldri en 25 ára og Toni keyrir líka nánast alltaf. Er búin að prófa hann bara aðeins upp í sveit. ;)

Ég ætla að halda uppá ammilið mitt næstu helgi..  partí partí;)

Jæja ætla að fara gera eitthvad annað en sitja fyrir framan tölvuna.. Heyrumst

 

jamm og jæjaJóna Björk Viðarsdóttir

Ég bara snýst í kringum sjálfa mig og get ekki ákeðið hvort ég eigi að fara læra eða drulla mér í ræktina.. Og þá fór Jóna duglega bara á netið í staðinn.. hefði reyndar bara betur sleppt því.. því maður fær bara í magann að heyra þessar fréttir að heimann.En læra spyr sig einhver.. hvað er Jóna að læra?? Jú mín er byrjuð í frönsku.. fer í frönskutíma alla morgna í skólanum sem ég var í ferðamálafræði en þeir buðu uppá frítt ensku eða frönskunám fyrir fyrrv nemendur skólans sem ekki eru með vinnu. Og þar sem heimsferðir er allt í gegnum Ísland er eins og ég sé á atvinnuleysisskrá. Stefnan er svo tekin á að taka líka einhverja ensku seinni partinn og þá kannski mest sjálf og taka svo advanched prófið kannski í des og fá official titil í ensku. Svo er heimsferðir byrjað á fullu ( íslendingar eiga alltaf pening til að ferðast) hehe 

Það var alveg yndislegt á Mallorca með familíunni.. fengum bara fínt veður og bara rosa gaman hjá okkur. Við leigðum okkur bíl einn daginn og svo hitti ég nokkrar vinkonur og fleira skemmtilegt:)  Svo kom Sindri brói núna um helgina til Barcelona og ég er að hakka í mig nóa rússínurnar sem hann kom með handa mér.. ummm i love it! ;) Held að hann hafi slegið met í ódýrri utanlandsferð en flugfarið vann hann í happdrætti hér á þorrablótinu í vetur.. gisting hjá bestu systir og bara einu sinni út að borða.  (Held reyndar að hann hafi líka slegið bjórmet;) hehehe
 

Á þessu heimili er sko engin kreppa get ég sagt ykkur því við skötuhjúin vorum að kaupa okkur eitt stykki bíl! Við græddum á annarra kreppu sem vantaði að losna við bílinn sinn því hann gat ekki borgað af lánunum. Þetta er semsagt svartur citroen C4 ársgamall og bara keyrður 13 þús kílómetra.  Erum voða ánægð með hann og náttlega mest ánægð með verðið á honum;)

jæja er farin í mat til tengdó
heyri í ykkur og ekki missa ykkur í einhverri vitleysu þarna á klakanum.. þetta reddast einhvernvegin lömbin mín;) 

svoo óréttlátt þetta líf stundumJóna Björk Viðarsdóttir

Hún Patricia frænka hans Tonis lést í síðustu viku. Ég var búin að segja ykkur frá henni.. hetja sem er búin að vera berjast við hvítblæði nánast samfleytt síðan hún var 12 ára. Varð 17 ára í sumar þannig að þetta var búið að vera langt stríð.  Það var haldið að hún væri laus við krabbameinið þegar hún var greind aftur fyrir einu og hálfu ári síðan og var gefið um 3 mánuði ef ekki fyndist nýr mergur handa henni. Í hönd fór mikil herferð til að fá fólk til að skrá sig sem merggjafa því það fannst ekki mergur handa henni og Toni og besti vinur hans stofnuðu heimasíðu og flestir fjölmiðlar fjölluðu um málið. Þetta fékk gríðarlega athygli og þúsundir manna skráðu sig (ath að fleiri skráðu sig en voru fyrir á skrá). 
 Hún fór svo í mergskipti í ágúst í fyrra og virtist ganga mjög vel og líkaminn tók vel við nýja mergnum þótt hann væri ekki fullkominn fyrir hana. Þetta ár er búið að vera upp og niður inn og útaf spítala útaf alls kyns veirusýkingum en hún var í raun laus við krabbameinið.. bara alls konar vírusar og ógeð sem á endanum líkaminn réð ekki við. Var búin að vera frekar veik í sumar en maður samt einhvern veginn bjóst ekki við þessu.. sérstaklega þar sem hún virtist svo hress þegar við kíktum á hana fyrir rúmri viku. En já ótrúlegt hvað hægt er að leggja á sumt fólk.. eins og hún var búin að vera dugleg og ganga í gegnum. Alltaf brosandi sama hvað og bara svo yndisleg stelpa.


Annars er ég að fara til Mallorca núna í vikunni og verð í nokkra daga því mamma og litla systir eru að fara þangað.. fékk flug á kúk og kanil og verð svo bara hjá þeim á hótelinu. Hlakka ekkert smá til að vera með þeim í nokkra daga því er bara búin að hitta þær 2 daga á þessu ári.

Lifið heil.. og munið að þakka á hverjum degi fyrir það sem þið hafið því heilsan og lífið er ekki sjálfgefið


kv Jóna sem er reið og sár þessa dagana...

vó ég slappJóna Björk Viðarsdóttir

Nú er það svart.. Futura farin á hausinn! En ég rétt slapp.. fékk borgað fyrir 3 dögum það síðasta sem þeir skulduðu mér og í dag heyrði ég að þeir væri farnir á hausinn og búið að cancela öll flug. fjúff
Þeir greinilega bara meikuðu þetta ekki án mín;) hehe Voðalega er ég fegin núna að ég gat ekki fengið sumarfrí og hætti bara.. talaði við einn vin minn í morgun og þau vita ekkert hvort þau fá eitthvað borgað fyrir flugin í ágúst eða hvað. Þetta helvítis bensínverð er að fara með alla!!

Ég fór með Halldóri á Coldplay tónleika á föstudaginnHlæjandi  Voru að spila hérna í BCN og vá hvað þeir voru góðir... spiluðu næstum öll lögin af nýja disknum í bland við þessu vinsælustu. Var alveg fullt útúr dyrum og uppselt fyrir nokkrum mánuðum.

Eruði annars ekki hress.. og á lífi? líður alltaf svona soldið eins og ég sé bara að tala við sjálfa mig þegar engin segir orð;)

lifið heil

hæ hóJóna Björk Viðarsdóttir

Halló halló þá erum við komin heim (meira að segja nokkrir dagar síðan) og best að skella inn smá ferðasögu. Þetta var alveg geggjað og vel heppnuð ferð í alla staði. Byrjuðum á að fljúga til Feneyja og vorum þar að túrhestast í 2 daga og fórum svo með skipinu til Bari á Ítalíu, Olimpíu á Grikklandi, Izmir og Istanbúl í Tyrklandi og svo síðasta daginn til Dubrovnik í Króatíu. Enduðum svo í Feneyjum og fórum í dagsferð til Padua sem er rétt hjá Feneyjum áður en við flugum til Barcelona um kvöldið. Það sem okkur fannst verst var að stundum var frekar stutt stopp (stundum um 3 tímar) og bara rétt skoðað og aftur um borð ef maður vildi ekki missa af bátnum. Svaka keyrsla alla dagana, vakna snemma til að fara í höfn og svo var alltaf eh um að vera í skipinu.. bara einn dagur sem var bara siglt og ekki stoppad í neinni höfn. En þetta er náttúrulega þvílíkt þægilegur ferðamáti.. þú ert bara í leikhúsi, ferð svo að borða, kíkir svo kannski í casino, að sofa og þegar þú vaknar ertu komin til annars lands;) hehe Síðasta kvöldið var svo show þar sem farþegar tóku þátt og Toni söng hotel california með hljómsveit fyrir um þúsund manns í leikhúsinu:) Tók náttúrulega upp á video allesammen;) Toni tók svo líka upp allskonar fríkí viðtöl við fólk í í Istambúl byrjaði einn gaurinn að dansa magadans og ég veit ekki hvað.. hlakka til að sjá allt myndbandið;)  En þarna voru 3800 farþegar og um 1500 starfsmenn þannig að það var nóg af fólki alls staðar;) Verð svo að skella inn nokkrum myndum við tækifæri. Við erum ennþá í sumarfrí og pabbi og Guðný eru að koma núna í kvöld og verða í nokkra daga og við ætlum að fara með þeim til Tossa de mar og bara hafa það gott;) 


Eins og þið getið ýmindað ykkur kemst lítið annað að en flugslysið sem var núna í vikunni í Madrid. Um leið og ég heyrði fréttirnar byrjaði ég á að hringja í aðra stelpuna sem ég var að leigja með á Mallorca en hún er að fljúga hjá spanair. Áhöfnin var frá Madrid og svo var önnur áhöfn sem voru sem farþegar. 153 manns dóu og bara 19 komust lífs af og ein úr áhöfninni. Það ógeðslega er að fólkið bara brann inni og það var bara hægt að bera kennsl á nokkur lík. Get ekki líst því hvað þetta er hræðilegt.. heilu fjölskyldurnar sem voru á leið úr og í frí til kanaríeyja þurkuðust bara út! Eins og ein gömul hjón sem misstu börnin sín 2 og maka og öll barnabörnin! Síðustu 3 mánuði kom ég næstum hverja helgi hingað heim með spanair! Eiginlega bara hálf fegin að vera hætt að fljúga þegar maður heyrir eitthvað svona. 
 

Jæja er farin að taka til áður en ég fer og sæki pabba og reyna að finna út hvar við getum horft á leikinn í fyrramálið. Úrslitin í körfuboltanum eru rétt á undan spánn- usa og ég held að eurosport sýni bara seinni hálfleikinn.. en það verður kannski bara að duga. En váá hvað það var gaman að vinna Spán!! fórum heim til karenar að horfa og ég málaði íslenska fánann á kinnarnar og á karen líka og vorum að missa okkur sveiflandi litlum fánum;) Bara ÁFRAM ÍSLAND á morgun!! 
 

Hid ljúfa líf...:)Jóna Björk Viðarsdóttir

Gledilega versló gott folk.. vona ad tid séud öll ad djamma eda gera eitthvad skemmtilegt:)  Ordid dáldid langt sídast og komin tími á smá fréttir tví ég er med fullt af fréttum!!Brosandi

Í fréttum er tad helst ad tad eru bara 5 dagar tangad til vid forum í skemmtiferdasiglinguna!! Aahh! Ó mae gaad! Semsagt fyrir ykkur sem ekki vita tá býdur tengdapabbi okkur öllum í viku siglingu um Midjardahafid. 2 ár sídan hann tilkynnti tetta og átti ad vera sídasta sumar en var svo ekki haegt tannig ad var ákvedid ad gera tad núna í sumar. Tannig ad tad er semsagt alveg ad koma ad tessari blessudu siglingu sem vid erum búin ad bída eftir í 2 árHlæjandi  Fljúgum til Feneyja á föstudaginn naesta og verdum tar í 2 daga og á sunnudaginn byrjar svo siglingin og vid förum í tetta súperskip sem mér skilst ad sé á 17 haedum. Eins og tid getid ýmindad ykkur erum vid ordin freekar spennt og ég er eiginlega bara ekkert ad fatta ad tad sé loksins ad koma ad tessu;) Vid verdum 10 saman, pabbi Tonis og konan hans, 2 stjúpbraedur og 2 albraedur og svo 3 kaerustur.. og tengdó blaedirGlottandi hehe  


Í gaer var svo sídasta flugid mitt hjá Futura en útaf siglingunni vard ég ad segja upp!! Á endanum var svo ekki séns ad fá frí í ágúst tví tad er svo mikil vöntun á íslensku og ég vard bara ad haetta. Bara their loss ad vera svona trjóskir og sérstaklega tví tetta voru 3 flug sem ég turfti frí. Allir í vinnunni eru frekar hneyksladir á tessu og flestir segja ad teir eigi eftir ad koma grenjandi til mín og grátbidja mig um ad koma aftur tví vid erum bara trjár sem tölum íslensku og alltaf verid ad segja okkur ad tad vanti Íslendinga. En sjáum til.. ekkert of viss heldur ad ég myndi halda áfram.. kannski aftur naesta sumar.. átti reyndar bara um 2 mánudi eftir af samningum mínum en tad eru aldrei gerdir lengri en 6 mán samningar vid áhafnir og svo máttu ekki koma aftur fyr en eftir 6 mán og sumstadar ár aftur. Ríkid borgar teim nebblega fyrir hvern sem teir taka nýjan inn. Tad er fólk sem er hjá futura sem er búid ad vera kannski um 10 ár ad hoppa milli flugfélaga tangad til tad er fastrádid og tá náttlega milli borga líka. 6 mán í madrid, 6 mán í palma, 6 mán á kanaríeyjum etc.
 

Fór á djammid hérna í gaer med nokkrum krökkum í futura.. vard nú ad halda smá uppá verslóGlottandi  svo skila ég búningnum á morgun og hinn daginn flyt ég til Barcelona med alle mine drasl úr litla herberginu mínu hér í Palma.
Annars sídan sídast er ég búin ad fara hverja helgi til Barcelona nema eina tegar Toni kom hingad og vid ferdudumst adeins um Mallorca tannig ad ég er allavega búin ad sjá smá af eyjunni;) Búin ad gera helling í sumar og bara ekki stoppad.. búin ad búa í ferdatösku nátllega núna í 3 og hálfan mánud een the best is still to come;) hehe 

Heyrumst sídar og ég laet kannski vita af mér í siglingunni nú eda kem bara med ferdasögu tegar hún er búin:)

 adiooos

home sweet homeJóna Björk Viðarsdóttir

Þá er ég loksins búin að komast til Akureyrar.. fór í síðustu viku surprise heim á 17. júní!  Brosandi Bara pabbi vissi að ég væri að koma en hann hringdi í mig um daginn og sagðist ætla bjóða mér heim á 17.júní. Jú og Elísa sem þurfti að hjálpa mér aðeins við smá plott.;)  Það var stúdentsveisla heima hjá pabba en frændi minn var að útskrifast frá MA og hele familían var náttlega heima. Ekkert smá gaman að komast smá heim þó hafi bara verið um hálfur dagur.. allavega betra en ekki neitt, hafði líka aldrei séð húsið hjá pabba og Guðný með húsgögnum og reddí. Tók reyndar frekar mikið á því ég var búin að vera vakandi í um 24 tíma þegar ég kom aftur á hótelið í Keflavík um kvöldið og svo klukkan 7 næsta morgun flaug ég til Krítar og til baka!! En alveg þess virði þótt ég hafi verið að líða yfir mig af þreytu i fluginu daginn eftirGlottandi hehehe  

Er núna í Keflavík og aldrei þessu vant er bara ágætisveður hérna.. sól og blíða í dag (eða allavega svona íslensk blíða) fór í sund í dag og bara dúlla mér eitthvað.

En sumarið kom sko í Barcelona um helgina. Var þar um helgina og ég hélt ég myndi andast úr hita!! Ekki búið að vera neitt sérstakt veður hingað til (“bara” svona 20 gráður) en svo alla helgina var 35 gráður og við ekki búin að sækja loftkæligræjuna úr geymslu hjá tengdó!  Aðeins of mikið hitastökk og voða gott að komast til Tenerife í gær þar sem er alltaf voða milt og gott;) Eyddi hálfum deginum í gær á hótelinu á Tenerife í sólbaði og fór í spaið og sonnaSvalur Elska þegar ég þarf að fljúga frá Tenerife og hótelið þar er uppáhaldshótelið mitt, í gær fékk ég HUGES svítu með nuddpott á baðinuHlæjandi

 


Jæja farin að hvíla mig meira.. langur dagur sem bíður mín á morgun.. flýg fram og til baka til Portúgal og svo til Alicante sem farþegi og svo til Palma.. um 18 tímar!

 

Knús í krús

já og jæjaJóna Björk Viðarsdóttir

Hér á Spáni er allt ad komast í eðlilegar skorður eftir að vörubílstjórar fóru í verkfall í um eina viku og það var eiginlega bara allt að verða veetlaust. Fyrir utan að allur matur í búðunum og matarmörkuðum var að verða búin þá lokuðu þeir fullt af hraðbrautum, kveiktu í einhverjum vörubílum og ég veit ekki hvað og hvað. Þeir voru semsagt að mótmæla hækkun bensínverðs og lágum launum og þetta hafði auðvitað áhrif á mörg önnur störf. Einhverjar verksmiðjur gátu ekki haldið áfram starfsemi því það komu engar vörur, allt bensín búið á bensínstöðvum, sjómenn fóru ekki á sjó, bændur urðu að hella fleiri þúsund lítrum af mjólk, grænmeti og ávextir skemmdust og svo mætti lengi telja. Einhverjir misstu sig líka í að kaupa mat og keyptu fyrir margar vikur því fólk hélt að þetta myndi standa yfir í langan tíma, sérstaklega gamla fólkið sem sá fyrir sér stríðsástand!

Er annars nýbúin að lesa “leyndarmálið” eða the secret og I love it.. mæli með þessari bók!! Margt hægt að nota sér í þessari bók.. ekki það að ég sé eitthvað sérstaklega neikvæð eða svartsýn manneskja en margir punktar sem maður getur nýtt sér. 
 

Heyrumst síðar mín kæru og munið að þakka fyrir lífið á hverjum degi og elskið sjálf ykkur;) múaak

keflavík keflavíkJóna Björk Viðarsdóttir

Mig laangar noorduur búhúhú!!:( Er á hótelinu í Keflavík þriðju vikuna í röð og langar heim í Akureyrina mína í mömmumat og greifapizzu og brynjuís og ömmukleinur etc etc etc. Í júní er ég BARA að fljúga til íslands fékk engin önnur flug og stoppa alltaf í 3 daga en næ bara einum heilum degi. Kem yfrirleitt snemma á morgnana á þriðjudögum og byrja á því að fara sofa því kl 3 um nóttina vakna ég og fer frá palma til alicante og svo ísland!  Á morgun fljúgum við til Krítar og til baka þannig að langur og skemmtilegur dagur framundan. Nokkrum sinnum búin að þekkja fólk sem er að fljúga með okkur og þá er náttlega VIP þjónusta;) hehe

Fór annars í geggjað skandinavískt júróvision partý þar sem voru 3 svíar 2 finnar og 3 spánverjar og aðalmálið hver af þessum löndum fengi mest stig og að sjálfsögðu vann ísland alla..ekki með miklum mun en jæja;) Vorum öl með okkar fána og svona en stelpan sem ég er að vinna með er algjör íslands fan og á risa íslenskan fánan:)


En aðalmálið... ég var á tónleikum í fyrradag með BON JOVI í Barcelona og það var geeðveikt!! Keyptum miðana í nóvember þannig að búið að bíða lengi eftir þessu.. kom samt ekki í ljós fyrr en nokkrum dögum fyrir tónleika hvort ég kæmist því planið fyrir júní kom bara í síðustu viku. En þeir byrjuðu á mínútunni sem þeir áttu að byrja og spiluðu í 2 og hálfan klukkutíma.. ekki slæmt. Öskruðum náttlega úr okkur lungun með it´s my life, keep the faith og fleirum uppáhaldslögum:)  Var semsagt í frí í BCN um helgina og góð helgi að baki, ekki stoppað, fórum líka í fermingarveislu og svo náttlega lots of quality time með kæró eins og Elvan mín orðar það;)  

 

Jæja ætla að kíkja á þessa rækt hérna niðri.. best að reyna hreyfa á sér rassinn þar sem ég kom með ræktarföt og skó í þetta skiptið;)

Síða 1 af 4

Auglýsing

Innskráningar kubbur

Who am I?